Opið svæði.

Opið svæði.

Opið svæði sem nýtist íbúum nærliggjandi húsa sem hafa aðgang að því í gegnum eigin garða en ekki verða gerðir sérstakir göngustígar inn á svæðið. Þarna má planta trjám og byggja upp skjól án þess að skipuleggja svæðið sérstaklega að öðru leyti. Íbúar nærliggjandi húsa gætu tekið að sér að fóstra þennan blett og halda honum snyrtilegum. Í anda hugmyndafræðinnar um „sveit í borg“ má leyfa hrossum að vera á afmörkuðu svæði til beitar en þau eru nágrönnum bæði til ánægju og yndisauka

Points

Fyrirhuguð stígagerð ásamt leiksvæði, grillaðstöðu og fleiru er sóun á almannafé þegar önnur mikilvægari verkefni eins og göngustigur við Fornahvarf sitja á hakanum með tilheyrandi slysahættu ! Téðu svæði þar sem fyrirhugaðar framkvæmdir eru boðaðar er haldið snyrtilegu, það er ofsögum sagt að svæðið sé í órækt. Svæðið er tilvalið til beitar fyrir hross og eru það forréttindi að hafa slíkar skepnur fyrir augunum út um stofugluggann og fyrir börnin að líta á.

Back to group

This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation

Your Priorities on GitHub

Check out the Citizens Foundation website for more information