
Fleiri leiktæki sem henta yngri aldurshópum svo foreldrar geti farið með börn á öllum aldri á leiksvæðið.
Já mjög sammála, væri líka æðislegt ef svæðið væri afgirt eins og er oft á litlum leiksvæðum erlendis.
Jáá!! ætlaði einmitt að koma með sömu hugmynd, þarft!
Mikil vöntun á afgirtum leikvöllum fyrir ung börn í Kópavogi sem foreldrar barna í fæðingarorlofi eða sem ekki eru í dagvistun geta nýtt sér þegar leikskólalóðir eru í notkun.
Stórar umferðagötur eru í kringum leiksvæðið og mikil umferð. Það er mikil umferð um Borgarholtsbraut og einnig oft mikill umferðahraði á götunni sem liggur frá Kópavogskirkju og að Borgarholtsbraut. Einnig koma hjólandi vegfarendur oft á mikilli ferð milli Gerðarsafns og bókasafnsins. Það er því nauðsynlegt að tryggja öryggi yngri barna á þessu svæði með ýmsum leiðum, t.d. girðingum við Borgarholtsbraut, hraðahindrunum á götunni frá Kópavogskirkju eða að breyta þeirri götu í botnlanga.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation